Núllstilling

Núllstilling sérhæfir sig í samtalsmeðferðum á netinu fyrir einstaklinga, pör og fjölskyldur. Samtölin fara fram í gegnum öruggan og verndaðan búnað, og hvert samtal tekur 50 mínútur.

Verð fyrir hvern tíma er 21.000 kr.

Um Okkur

Heiðrún Jenný Smáradóttir
Fjölskyldu- og hjóna ráðgjafi

Konan á bak við Núllstillingu er Heiðrún Jenný Smáradóttir. Heiðrún leggur mikla áherslu á öryggi og traust í samtölum. Heiðrún hefur öðlaðist dýrmæta reynslu í að vinna með pörum og einstaklingum í gegnum samtals meðferðir bæði á Íslandi og í Bandaríkjunum.

Um Okkur

Brynjar Árni Smárason
Tæknimaður

Brynjar er hægri hönd Heiðrúnar og leiðir hana í gegnum öll tæknimál sem tengjast Núllstillingu.

Þjónustan Okkar

Núllstilling býður upp á samtalsmeðferðir á netinu og er hvert viðtal 50 mínútur. Við bjóðum upp á einstaklings-, para- og fjölskylduviðtöl. Markmiðið okkar er aukið aðgengi að samtalsþjónustu á íslensku með því að bjóða upp á hana á netinu á meðan þú ert hvar sem er í heiminum.

Einstaklingsráðgjöf

Í einstaklingsviðtölum er unnið út frá dýpt og þörfum hvers og eins. Vandamál eða vanlíðan eru greind, og meðvitund einstaklingsins um eigin ábyrgð á þeim er byggð upp. Í framhaldinu er lögð áhersla á að skoða og vinna með mörk, tilfinningar, áföll, áfallaviðbrögð, áhrifaþætti, sjálfsvirði og fleira.

Pararáðgjöf

Í paraviðtölum er unnið með sársauka, vandamál, samskipti, uppeldi, áföll, fjölskyldumynstur og dýnamík beggja aðila. Lögð er áhersla á að skilja upplifanir og líðan makans. Eftir atvikum er unnið að lausnum, auknum skilningi og bættum samskiptum á markvissan og skilvirkan hátt. Í framhaldinu er stuðlað að því að dýpka nánd og tengingu milli parsins og vinna að sameiginlegum markmiðum sambandsins.

Fjölskylduráðgjöf

Í fjölskylduráðgjöf eru þau vandamál sem liggja fyrir innan fjölskyldunnar greind og skilgreind. Hver fjölskyldumeðlimur fær tækifæri til að tjá sig og koma sínum sjónarmiðum og þörfum á framfæri. Þarfir fjölskyldunnar sem heildar eru einnig skoðaðar. Í sameiningu eru mögulegar leiðir og lausnir greindar og metnar til að stuðla að bættri dýnamík og samskiptum innan fjölskyldunnar.

Ertu klár í að hefja þitt ferðalag?

Bókaðu hjá Núllstillingu í dag ef þú ert klár í að hefjast handa

Markmið ráðgjafarinnar er að stuðla að sterkari tengslum, bættum samskiptum og sameiginlegum lausnum innan fjölskyldu eða sambands. Samskiptaaðilinn skapar öruggt og traust rými fyrir opna umræðu og hjálpar einstaklingum, pörum og fjölskyldun að finna sameiginlegan grundvöll.
Samtölin henta vel fyrir fjölskyldur sem glíma við ágreining, missi, samskiptavanda, uppeldisvanda eða aðlögun að breyttum aðstæðum. Í ferlinu er unnið með fjölbreytt vandamál, allt frá áföllum til daglegra áskorana.
Verkferli og nálgun:
Samtölin fara fram í skrefum þar sem aðgreining, umræður og lausnamiðaðar aðgerðir eru lykilatriði. Aðferðir eins og lausnamiðuð nálgun og fjölskyldukerfiskenningar eru nýttar til að tryggja að samtölin henti þörfum fjölskyldunnar.
Ávinningur ráðgjafarinnar felst í að fjölskyldan lærir að tjá sig á uppbyggilegan hátt, auka samkennd og finna lausnir sem virka fyrir alla. Markmiðið er að skapa jafnvægi og styrkja tengsl fjölskyldumeðlima til framtíðar.

Umsagnir

Frá fólki sem við höfum unnið með

Ég var að klára og gefa út mitt fyrsta hjólabrettamyndband í 12 ár og ég vildi bara segja takk fyrir. ég hefði ekki getað gert þetta án stuðnings frá þér og hjálpinni við að koma hugsunum mínum í lag eftir allt sem hefur gengið á.”

Vá. Kærar, kærar þakkir fyrir að hlusta á mig í dag og sjá mig á þennan hátt. Ég vissi nú þegar að ég er öruggur í þessu sambandi við þig sem meðferðaraðili, en þetta staðfesti það enn frekar. Ég þakka þér innilega.

Það tekur enga stund að heyra í okkur – við erum hér fyrir þig!

Hafðu Samband

Hver spurning skiptir máli.
Hafðu samband við okkur hjá Núllstillingu í dag í gegnum tölvupóst: nullstilling@nullstilling.is. Við erum hér til að aðstoða þig!

Please enable JavaScript in your browser to complete this form.
Nafn
Translate »